jæja hér er ég komin með nýja tölvu, hin tók nefnilega upp á því
að gefa upp öndina um helgina.
Ég ákvað að vera svo dugleg að mála stofuna mína og tók því tölvuna
úr sambandi, þegar henni var svo skellt
í samband aftur startaði hún sér ekki
En ég er sem betur fer komin með nýja, enda erfitt að lifa
tölvulaus.
Maturinn hefur gengið nokkuð vel, sunnudagurinn fór reyndar í
algert rugl, ég fór að heiman um tíu
um morguninn og kom ekki heim fyrr en um kvöldið og fékk mér smá á
disk tvisvar sinnum í veislunni.
Diskarnir voru sem betur fer litlir og ég fékk mér að mestu leyti
brauðrétti en þó tvær sneiðar af köku með.
Ég nenni hreinlega ekki að setja inn matseðlana og ætla að láta
þetta duga í dag, ætla að gera gott plan fyrir
næstu viku og hugsa að ég skelli því bara hér inn á undirsíðu.
gangi ykkur vel og takk fyrir kvittið
Kveðja Stíll